Andri Þór Guðmundsson - Úr 3 í 18 milljarða með myndrænni markmiðasetningu - a podcast by Alfa Framtak ehf.

from 2019-10-11T08:00

:: ::

Hvernig umbreytir þú rótgrónu framleiðslufyrirtæki í árangursdrifið sölu og markaðsfyrirtæki? Viðmælandi okkar í þessum þætti er arkitektinn á bak við undraverðan árangur Ölgerðarinnar. 


Tekjur Ölgerðarinnar hafa vaxið úr þremur í átján milljarða undir hans stjórn og arðsemi aukist. Viðmælandinn er Andri Þór Guðmundsson og er forstjóri félagsins. 


Hvernig breyttist popp og kók í popp og pepsí? Hvað gerðist eiginlega? 


Andri trúir á lýðræðislegt einræði og lýsir því betur í viðtalinu. Hann kann þá list að setja stór markmið og virkja fólk með sér til þess að ná þeim. 


Andri er hafsjór fróðleiks og reynslu í að stýra breytingum, setja stefnu og spila sókn. Það er hægt að læra ótal margt af honum um rekstur fyrirtækja og leiðtogahæfni. 


Leið Andra upp á við var ekki alveg bein en hann var á sínum tíma rekinn sem aðstoðarforstjóri Lýsis hf. Andri fer yfir hvernig hann átti sér draum að eignast fyrirtæki og hvernig sá draumur rættist á endanum. 


Andri hefur átt lærdómsríkt lífshlaup. Já og þetta er hlaup því hann gerir ekki neitt á hálfum hraða! 


Further episodes of Alfa hlaðvarp

Further podcasts by Alfa Framtak ehf.

Website of Alfa Framtak ehf.