Geirarður Long og Doddi litli - a podcast by RÚV

from 2017-10-19T07:10

:: ::

Hópur fólks var fengin til að velja tónlist frá níunda áratug síðustu aldar. Lögin þurftu að hafa ná einhverjum vinsældum en náði kannski aldrei til Íslands og/eða eru að mestu gleymd í dag. Þórður Helgi Þórðarson og Geirarður Long fara aftur í tímann og hlusta saman á gamlar perlur. Geirarður Long Visage-Damned Dont Cry. My Mine-Hypnotic Tango. The Human League-Seconds Propoganda Dr.Mabuse Ultravox-Mine For Life. Yello Desire. Trans X-Living On Video. Hvað er 80´s? Er það Duran Duran og Wham? eða varð það Boy George og Rick Ashley? Fyrir mörgum er þessi ágæti áratugur ekkert nema froða skærir litir og legghlífar en var eitthvað meira í gangi? Hvernig var tónlistin fyrir utan það sem við heyrum í dag? Þórður Helgi Þórðarson fékk hóp fólks úr öllum áttum til að velja gleymdar perlur níundaáratugarins til þess að kanna hvort það hafi verið eitthvað meira, eitthvað annað en froðan sem við þekkjum í dag. Reglurnar voru einfaldar, hópurinn átti að koma með tillögur af lögum sem náðu einhverjum vinsældum á sínum tíma en eru að mestu hætt að heyrast í dag. Þetta er verkefni fyrir unga fólkið sem er með ákveðnar hugmyndir um tónlist áratugarins, 80´s var bara svo miklu meira en bara Duran og Wham. Hallaðu þér aftur, hlustaðu á gleymdar en glæsilegar perlur frá þessum magnaða áratug sem margir telja þann lélegasta í dægurlagasögunni... þangað til að það fólk hlustar á „Gleymdar perlur áttunnar“.

Further episodes of Gleymdar perlur áttunnar

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV