Nárú - a podcast by RÚV

from 2021-01-31T22:10:42.023393

:: ::

Í þættinum er fjallað um eyjuna Nárú í Kyrrahafi, eitt minnsta sjálfstæða ríkis í heimi. Nárú fór á örfáum áratugum frá því að vera eitt ríkasta lands heims til gjaldþrots, og hefur verið í fréttum síðustu misseri vegna umdeildra flóttamannabúða sem eyjaskeggjar reka fyrir áströlsk stjórnvöld. Meðal þess sem einnig kemur við sögu í lygilegru sögu Nárú er fugladrit, bresk popphljómsveit, Leonardo da Vinci, hryðjuverkasamtökin Al-Kaída, þrjóskur norskur skipstjóri og rússneska mafían.

Further episodes of Í ljósi sögunnar

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV