03.05.2020 - a podcast by RÚV

from 2020-05-03T09:03

:: ::

um tilfinningar. Allar manneskjur eru tilfinningaverur. Sumar ræða um tilfinningar sínar, aðrar síður. Tilfinningaleysi þykir löstur en öðrum leiðist tilfinningasemi. Stundum er sagt að munur sé á kynjunum hvað varðar aðgengi þeirra að eigin tilfinningum og hvað þau eiga létt með að tala um þær. Hvað eru tilfinningar? Hvaða hlutverki gegna þær í lífi okkar? Eiga þær sér sögu? Eru til heilbrigðar tilfinningar og óheilbrigðar? Hvað með tilfinningar úti í samfélaginu? Stýra samfélagslegar kvaðir tilfinningum okkar? Er verið að spila með þær í stjórnmálaumræðu? Á markaðnum? Hvernig birtast þær í bókmenntum, kvikmyndum, fjölmiðlum? Leitast verður við að svara þessum spurningum í samtali Ævars og Torfa við fræðimenn úr ólíkum greinum: sagnfræði, stjórnmálafræði, sálfræði, félagsfræði og bókmenntafræði. Umsjón: Ævar Kjartansson og Torfi Tulinius.

Further episodes of Samtal

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV