Berglind Rós Magnúsdóttir - a podcast by RÚV

from 2018-10-07T09:03

:: ::

Í þessum þáttum um menntun og framtíðina liggur þungi umræðunnar á menntun, fremur en framtíðinni, en samt er aðalatriðið að velta því fyrir sér hvert verður form, inntak og gildi menntunar (fyrir einstakling og samfélag) eftir 20-40 ár, þ.e. á árunum 2040-2060, þegar unga fólkið sem nú er hefja sína skólagöngu verður í blóma lífsins. Flest af þessu fólki mun upplifa mun hraðari breytingar á sínum lífsferli en við þekkjum nú, þótt sumum okkar þyki nóg um nú þegar. Breytingarnar munu sjást hvarvetna: Ekki síst í daglegu menningarlegu umhverfi, en einnig m.a. í samsetningu jarðarbúa, búsetu og skiptingu gæða, í nýtingu auðlinda, í breytingum á loftslagi, þróun tækni og nýtingu hennar, í atvinnuvegum og atvinnumenningu, í þekkingarsköpun og nýtingu skilnings og þekkingar. Allt þetta vekur spurningar um hlutverk og síðan inntak og form menntunar þegar horft er til næstu áratuga. Ekki er verið að ræða stöðu eða frammistöðu skólakerfisins í dag - leitast er við að horfa eftir megni til framtíðar og er þess vegna að mörgu leyti allt önnur umræða en verið hefur um skólamál (eins mikilvæg og hún þó er). Við munum ekki hafa framtíðarspár eða pælingar um framtíðina sem sérstakt viðfangsefni heldur flétta þær inn í samtöl við alla viðmælendur. Þetta ræðst einkum af þeim ásetningi að hafa menntun, hlutverk hennar og eðli í brennidepli, en það hefur eiginlega vantað í vangaveltur um framtíðina undanfarna áratugi.

Further episodes of Samtal

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV