Andri Björn Róbertsson söngvari - a podcast by RÚV

from 2021-10-11T09:05

:: ::

Það er alltaf hægt að bæta sig í hverju sem er, segir Andri Björn Róbertsson söngvari. Hann hefur náð langt í tónlistinni á skömmum tíma en játar að vera í eðli sínu hlédrægur .Andri Björn er bass-barítón og var valinn bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaunum 2013. ?Það er alltaf hægt að bæta sig í hverju sem er og halda áfram, bæta og breyta,? segir hann í samtali við Sigurlaugu M. Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. ?Á þeim tíma var þetta mjög ánægjulegt. Ég var úti þá og í öðrum verkefnum og með mín eigin markmið, þannig að þetta var góð hvatning.? Hann byrjaði snemma að syngja í kór og byrjaði í söngtímum þegar hann var 9 ára. Fram á táningsár stefndi hann þó í allt aðra átt en að starfsframa í söng. ?Mig langaði mest að verða fótboltamaður en þegar ég var 16 eða 17 áttaði ég mig á því að ég var ágætur í söngnum og þá jókst áhuginn. Þá ósjálfrátt fór ég að setja mér markmið.? Í október kemur út fyrsta hljómplata Andra Björns, þar sem hann flytur ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara lög og tónverk eftir Robert Schumann og Árna Thorsteinsson. Á tónleikunum í kvöld flytja þau tónlist af plötunni.

Further episodes of Segðu mér

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV