Ari Ólafsson tónlistarmaður - a podcast by RÚV

from 2021-09-01T09:05

:: ::

Ari Ólafsson söngvari þekkir eitraða karlmennsku í fótbolta af eigin raun. Hann æfði með KR þegar hann var yngri en þótt ekki passa í hópinn, var kallaður ?gay? og hommi og lagður í einelti í grunnskóla. Í dag lærir hann við virtan söngskóla í London, hefur leikið á sviði og farið í Eurovision. Hann hefur verið beðinn fyrirgefningar og mætir að eigin sögn gerendum sínum af virðingu og skilningi. Það muna flestir eftir söngvaranum Ara Ólafssyni sem tók þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018 með laginu Our Choice aðeins átján ára gamall. Ekki síst vakti athygli hve brosmildur Ari er en mörgum eru líka minnisstæð tár hans, þegar hann grét á úrslitakvöldinu eftir flutning sinn. Hann kveðst alltaf hafa tamið sér að sjá jákvæðar hliðar lífsins. ?Ég held ég hafi alltaf verið þannig. Hafi haldið í brosið og jákvæðu hliðarnar. Ég byrja daginn á að brosa. Ég brosi stundum á óviðeigandi stöðum þegar maður á að vera leiður,? segir Ari sem var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.

Further episodes of Segðu mér

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV