Benedikt Erlingsson leikstjóri - a podcast by RÚV

from 2021-04-20T09:05

:: ::

?Það er svo gaman við Dani að þeim finnst við ekkert exótísk og finnst Íslendingar ekkert töff. Þeir vita varla af því að þeir hafi átt þetta. Það er svo skemmtilegt og hollt fyrir okkur stundum,? segir Benedikt Erlingsson leikstjóri sem vinnur að sjónvarpsþáttum um danska konu sem flytur til Íslands og er staðráðin í að ala Íslendinga upp að dönskum sið. Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur sannarlega verið iðinn við kolann síðustu ár, er alltaf með mörg járn í eldinum og marga bolta á lofti en segist þó eins og aðrir stundum þurfa að hafa fyrir því að fá hugmyndir. ?Það er hægt að setjast bara fyrir niður og ákveða að fá hugmynd. Þetta heitir að maður dregur sig inn í hellinn. Að hreyfa halann eins og sæðisfruma, hún hættir ekki að hreyfa halann sama hvað kemur fyrir hana.? Benedikt var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 þar sem hann sagði frá uppvextinum, leikstjóralífinu, nýjum þáttum sem hann leikstýrir og leiksýningunni Nashyrningarnir sem frumsýnd verður eftir töluverða bið á stóra sviðinu.

Further episodes of Segðu mér

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV