1984 eftir George Orwell - a podcast by RÚV

from 2017-02-05T10:15

:: ::

Árni Kristjánsson ræðir við gesti þáttarins, Árna Bergmann og Kötlu Hólm Þórhildardóttur, um bók vikunnar, 1984 eftir George Orwell. Lesari: Þorvaldur Friðriksson. Winston er þrjátíu og níu ára starfsmaður Sannleiksráðs en hann sér um að breyta upplýsingum í blöðum og kennslubókum eftir skipunum Flokksins. Winston kynnist Júlíu og þau reyna með útsjónarsemi að komast undan ströngu eftirliti Stóra bróður sem getur fylgst með öllu. Framtíðarsýn George Orwell er myrk og þrúgandi en bók hans markaði sér svo fastan sess að setningar á borð við „Stóri bróðir fylgist með þér" eru flestum þekktar. George Orwell náði að ljúka skáldsögu sinni 1984 áður en hann dó árið 1949. Hann lifði ekki nógu lengi til að vita af velgengni hennar.

Further episodes of Bók vikunnar

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV