Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við? - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-12-29T18:49

:: ::

Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það.

Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar.Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leiktíð en hvað gerist næst eftir að þessum langa Kristianstad-kafla lýkur?

Það verður fróðlegt að sjá en hún er með samning við félagið út næstu leiktíð.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net