Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor - a podcast by Fotbolti.net

from 2020-11-23T14:42

:: ::

Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net.

Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum ?Enski boltinn"í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum.

Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.Meðal efnis: Taktík Mourinho, Kane kemur stanslaust á óvart,"stálu"Höjberg á þrjár milljónir punda, bóluefni fyrir bikaraafhendingu, aðrir stíga upp hjá Liverpool, brúðkaupið sem Salah fór í, styðja litlu liðin í skiptingunum, lélegt gengi Gautaborg í FM, engin flugeldasýning hjá Man Utd, breidd hjá Chelsea, leiðindi hjá Newcastle, breyta vítareglum, Parker og Bilic í stórhættu, hugmyndasnauðir, Arsenal menn, geðheilsa Arilíusar veltur á Arsenal, baráttuleysi Sheffield United og ótrúleg úrslit Aston Villa.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net