Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-03-17T01:44

:: ::

Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni.

Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke.Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sætið en liðið á erfiða leiki eftir.

Hvað gera liðin sem eru örugg um að falla ekki en eiga ekki möguleika á Evrópusæti? Chelsea harkar út sigra í mótlætinu en Gylfi gefur lítið fyrir að menn séu tilbúnir að keyra rútur og greiða ferðakostnað úr eigin vasa. Þetta og margt fleira í þætti kvöldsins.Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla - allir að fá sér Góðgerðarpizzuna) og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri).

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net