Enski boltinn - Eldræða frá Mána en áhyggjurnar litlar hjá City - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-02-10T16:10

:: ::

Það er boðið upp á veisluþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu á þessum ágæta föstudegi.

Byrjað er á því að hringja í Þorkel Mána Pétursson, stuðningsmann Leeds. Hann fer vel yfir málin hjá sínum mönnum en hann er ekki sáttur með allt sem hefur verið í gangi þar. Leeds gerði 2-2 jafntefli gegn Manchester United í miðri viku og er farið vel yfir þann leik í þættinum.Svo er hringt í Magnús Ingvason, stuðningsmann Manchester City. Hann er rólegur yfir stöðu mála þó enska úrvalsdeildin hafi ákveðið að kæra City fyrir brot á fjármálareglum á dögunum. Getur Man City náð Arsenal í titilbaráttunni?

Þá er farið yfir næstu umferð í deildinni sem hefst á morgun en það eru margir áhugaverðir leikir framundan.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net