Enski boltinn - Hafa báðir haldið með City í meira en hálfa öld - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-08-09T13:00

:: ::

Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn.Í dag fengum við tvo Manchester City menn í heimsókn, þá Magnús Ingvason og Sigurð Helgason. Þeir hafa báðir haldið með Manchester City í meira en 50 ár, meira en hálfa öld. Magnús byrjaði að halda með City 1968, ári eftir að liðið varð þá Englandsmeistari. Sigurður útskýrir það í þættinum af hverju hann heldur með félaginu.

Þeir eru auðvitað brattir fyrir tímabilinu sem er framundan eftir magnað síðasta tímabil þar sem liðið vann þrennuna. Liðið getur núna stefnt á það að vinna sexuna.Það eru ekki margar breytingar á City-liðinu frá síðasta tímabili og breiddin er áfram stórkostleg.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net