Enski boltinn - Tekur City þann þriðja í röð? - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-08-02T15:20

:: ::

Enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudaginn. Fótbolti.net hefur síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina og mun halda því áfram fram að fyrsta leik.

Við spáum í deildina og heyrum í stuðningsmönnum. Þá mæta stuðningsmenn liðanna í topp sex í hlaðvarpsþætti þar sem þeir ræða um sitt lið og tímabilið sem er framundan.Í dag - í þriðju útgáfunni fyrir komandi leiktíð - er sérstakur Manchester City þáttur, Englandsmeistararnir eru teknir fyrir. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Ingvasyni, sem er einhver harðasti City maður landsins.

Farið var yfir síðasta tímabil, ótrúlegan lokadag, áhugaverðan leikmannaglugga í sumar, Erling Braut Haaland, samkeppnina við Liverpool og ferð Englandsmeistarabikarsins til Íslands.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net