Enski boltinn - Tekur upp hanskann fyrir Ronaldo - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-11-14T13:30

:: ::

Cristiano Ronaldo er á allra vörum í dag eftir viðtal sem hann fór í hjá umdeilda fjölmiðlamanninum Piers Morgan.

„99 prósent af stuðningsmönnum Man Utd munu standa með Erik Ten Hag, sem sýnir í raun hversu illa Ronaldo kom að málunum. Þetta eitt prósent mun styðja Ronaldo er Rio (Ferdinand), Roy (Keane) og Patrice (Evra),"sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, í gær.

Það má segja að Mate Dalmay, körfuboltaþjálfari Hauka, sé í þessu eina prósenti. Hann er mikill Ronaldo maður og er ekki sáttur við það hvernig Ten Hag hefur komið fram.Rætt er við Mate um stóra Ronaldo málið og stuttlega um leiki helgarinnar í Enski boltinn í dag.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net