Enski boltinn - Velkomnir úr draumalandinu og flókið draumalið - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-09-05T17:32

:: ::

Þeir Sæbjörn Steinke og Aksentije Milisic fara yfir sjöttu umferðina í ensku úrvalsdeildinni.

Það urðu nokkur ansi athyglisverð úrslit um helgina og mörg vafaatriði sem hægt var að tala um.Man Utd vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið lagði topplið Arsenal, Liverpool tapaði stigum í fjórða leiknum á tímabilinu, City náði ekki að leggja Villa og Chelsea var stálheppið að vinna. Brighton heldur svo áfram að heilla og Ivan Toney var maður helgarinnar.

Í lok þáttar eru svo valin draumalið skipað leikmönnum deildarinnar. Reglurnar eru þrjár: 11 leikmenn, að hámarki einn úr hverju liði og að hámarki einn af hverju þjóðerni.Þátturinn er í boði White Fox, en það er bara fyrir 18 ára og eldri.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net