Fagnaði þegar hann sá 'missed call' frá Arnari - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-03-15T15:22

:: ::

Sævar Atli Magnússon fékk að vita á mánudaginn að hann yrði í landsliðshópnum fyrir komandi landsleiki í undankeppni EM.

Þetta er í fyrsta sinn sem Sævar er í A-landsliðshóp þegar um keppnisleiki er að ræða, en hann spilaði sína fyrstu landsleiki í janúar. Hann var þá kallaður inn í hópinn eftir að upprunalegi hópurinn hafði verið tilkynntur.Hann hefur að undanförnu spilað vel í Danmörku, skoraði tvö mörk í sigri Lyngby gegn Midtjylland um liðna helgi. Lyngby rær lífróður í baráttunni um að halda sæti sínu í efstu deild og sigurinn á sunnudag því gífurlega mikilvægur.

Sævar ræddi við Fótbolta.net í dag, ræddi um landsliðið og Lyngby.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net