Freysi um Söru Björk: Draumur fyrir alla þjálfara - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-01-13T14:21

:: ::

Í morgun tilkynnti Sara Björk Gunnarsdóttir að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna eftir sextán ára feril. Hún fór á fjögur stórmót, lék 145 landsleiki og skoraði 24 landsliðsmörk á sínum ferli.

Á árunum 2013-2018 lék hún undir stjórn Freys Alexanderssonar í landsliðinu. Freyr er í dag þjálfari Lyngby í Danmörku og ræddi við Fótbolta.net um Söru Björk í kjölfar tíðindanna í dag.Freyr gerði Söru að fyrirliða á sínum tíma þegar Margrét Lára Viðarsdóttir var með barni og leiddi hún liðið á EM í Hollandi þegar Freysi var þjálfari liðsins.

Í seinni hluta viðtalsins ræddi svo Freysi um stöðuna hjá Lyngby sem hefur misst lykilmenn núna í glugganum og er í erfiðri stöðu í dönsku Superliga.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net