Gunnhildur Yrsa er mætt heim - Kom ekkert annað til greina - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-02-05T16:00

:: ::

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í atvinnumennsku.

Hún bjóst aldrei við því að verða atvinnukona í fótbolta eftir að hafa slitið krossband tvisvar. Það gerðist svo í þriðja sinn eftir að hún fór til Noregs frá Stjörnunni.En hún hélt alltaf áfram og endaði á því að leika í tíu ár erlendis, fyrst í Noregi og svo í Bandaríkjunum. Hún á þá að baki 96 A-landsleiki með Íslandi.

Gunnhildur er núna komin heim í Stjörnuna en það kom ekki til greina að fara neitt annað hér heima. Í þessu hlaðvarpi ræðir hún um byrjunina í Stjörnunni, tímann í atvinnumennsku, erfið mál í Bandaríkjunum, landsliðið og nýtt líf á Íslandi. Hún hvetur fólk til að fylgjast með Stjörnunni næsta sumar.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net