Heimavöllurinn - Landsliðið okkar - a podcast by Fotbolti.net

from 2018-11-27T14:08

:: ::

Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir ?Heimavöllurinn?. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir leikmenn landsliðsins með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR.

Í þættinum ræða þær meðal annars fyrsta æfingahóp Jón Þórs en æfingar fóru fram í byrjun nóvember. Þær fara einnig yfir bestu leikmenn landsliðsins og spennandi leikmenn sem eru að banka á dyrnar sem og fleiri mikilvæg málefni.

Þá má benda á að hægt er að fylgja þættinum á Instagram undir nafninu ?Heimavöllurinn?. Þar má meðal annars álgast nýjustu fréttir af leikmönnum ásamt því að Heimavöllurinn velur leikmann vikunnar og fær til sín gesti í hraðaspurningar.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net