Hlustaðu á útvarpsþáttinn - Bjöggi Stef, úrvalslið og ársþing - a podcast by Fotbolti.net

from 2019-02-09T14:30

:: ::

Það var líf og fjör í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag þar sem Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson voru við stjórnvölinn.

Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur þáttarins að þessu sinni og farið var yfir víðan völl í stórskemmtilegu spjalli við hann.Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og fram á vor verður valið úrvalslið áratugarsins (2009-2019).

Davíð Þór Viðarsson, miðjumaður FH, var fyrsti leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið áratugarins í Pepsi-deildinni og hann var í viðtali.

Ársþing KSÍ fer fram í dag og rætt var um formannskjörið þar og tillögur á þinginu.Hlustaðu á þáttinn í heild sinni.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net