HM Innkastið - Gylfi í garðinum og gamli skólinn á Instagram - a podcast by Fotbolti.net

from 2018-06-20T13:28

:: ::

HM innkast dagsins var tekið upp á flugvellinum í Gelendzhik rétt fyrir flug til Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu á föstudaginn.

Magnús Már Einarsson og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Hilmarssyni íþróttafréttamanni á Morgunblaðinu.Gummi kom með góðar sögur af því þegar Gylfi Þór Sigurðsson var að sparka í bolta í garðinum hjá honum á yngri árum. Gylfi og Viktor Örn, sonur Gumma, hafa verið bestu vinir síðan í æsku og Gummi fór yfir spyrnutæknina með þeim í Hafnarfirðinum í gamla daga.

Farið var vel yfir Nígeríu leikinn og stöðuna í riðlinum. Byrjunarliðið gegn Nígeríu var skoðað og Gummi boðar komu gamla skólans á Instagram í umræðu um vinsældir Rúriks Gíslasonar þar.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net