Hörmungarnar í Bosníu gerðar upp með Einari Guðna - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-03-24T12:52

:: ::

Ísland fór ekki vel af stað í undankeppni EM 2024 í gær þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir Bosníu í Senica.

Leikurinn var ekki góður hjá íslenska liðinu, bara alls ekki.Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu til Svíþjóðar í dag og spjölluðu við Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings, um vonbrigðin í gær.

Farið var yfir uppstillinguna á liðinu, frammistöðu liðsins í leiknum og framtíð Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara ásamt mörgu fleiru. Þetta var einn af úrslitaleikjunum í þessari undankeppni og sárt að hafa tapað honum eins og við gerðum.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net