Miðjan - Guðmundur Mete: Æskuvinur Zlatan um Malmö, Keflavík og fleira - a podcast by Fotbolti.net

from 2020-04-14T12:00

:: ::

Guðmundur Viðar Mete flutti ungur að árum til Malmö með fjölskyldu sinni og varð strax vinur Zlatan Ibrahimovic. Saman fóru þeir upp í aðallið Malmö en eftir að leiðir skyldu héldu þeir alltaf vinskap. Guðmundur Viðar kom svo heim til Íslands og spilaði með frábæru liði Keflavíkur í nokkur ár sem átti í hatrammri baráttu við ÍA. Guðmundur Viðar Mete segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag.

Meðal efnis:- Liðsfélagarnir gáfu honum tvær vikur í starfi en er að ná 14 árum
- Afi hans gaf rautt spjald með rauðum Winston í leik- Ekki sáttur við að flytja til Malmö
- Slagasmál, hnífar og handjárnaðir kennarar í skólanum- Fyrsti vinurinn var Zlatan Ibrahimovic
- Hann og Zlatan svindluðu í útihlaupum með strætókortið- Zlatan stal reiðhjóli í miðju hlaupi og reiddi hann
- Þurfti að spila leik á útskriftardaginn og missti af djamminu- Hafnaði Lilleström
- Svíar báðu hann að skipta um ríkisfang- Mestu mistökin að yfirgefa Malmö
- Erfiðir stuðningsmenn í Norrköping- Þjóðverjar hræktu og kýldu hann gegn U21 liði Íslands
- Kvartaði undan umgjörð hjá U21 liðinu- Þóttist vera hundur í göngutúrum Keflavíkur liðsins
- Framkvæmdastjóri Midjylland var algjör skíthæll- Rígur ÍA og Keflavíkur, rauða spjaldið, tæklingin og kynþáttafordómarnir
- Mark Bjarna Guðjóns sem gerði allt vitlaust- Fór á reynslu í Tyrkalandi en þjálfarinn rekinn degi fyrr
- Svekkjandi að tapa titlinum til FH- Áttum að gefa skít í að horfa á þennan leik
- Willum vildi gera hann að miðjumanni- Eina markið á Íslandi kom í 31 - 0 sigri Hauka
- AuPair hjá Zlatan eftir ferilinn- Kynnin af Mourinho, Gattuso, Beckham og fleirum

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net