Miðjan - Rauði Baróninn á mannamáli - a podcast by Fotbolti.net

from 2020-03-04T12:00

:: ::

Garðar Örn Hinriksson eða Rauði Baróninn eins og hann er oft kallaður er einn besti dómari sem hefur dæmt hér á landi. Hann hefur þó komið víða við, hefur gert það gott í tónlist, leikið í bíómynd og rekið slúðurvef. Hann glímir í dag við Parkinson sjúkdóminn og hefur vakið athygli fyrir pistlaskrif um fótbolta. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag.

Meðal efnis:- Dómarar aldrei heiðraðir fyrir sín störf
- Leikmenn eltu hann inn í skóla eftir fyrsta leikinn- Gaf sex rauð spjöld og flautaði leikinn af
- Viðurnefnið Rauði Baróninn- Skítaheimur og sleikjuháttur að vera FIFA dómari
- Sagði eftirlitsmönnum á Íslandi að halda kjafti- Í stríði við Gilzenegger og sakaður um að hata Skagann
- Baráttan við Guðjón Þórðarson- Rautt spjald fyrir að tala króatísku
- Spjaldaði áhorfendur á Selfossi- Tvisvar næstum því búinn að berja leikmenn í leik
- Hótanir stuðningsmanna- Dóttir hans lenti í einelti útaf dómgæslu hans
- Tilbúinn að hlaupa nakinn með Gilzenegger í Kringlunni- Ásakanir um rasisma
- Hætti að dæma eftir viðtal Kidda Jak um form dómara- Leið eins og 12 ára píu á Justin Bieber tónleikum
- Sló í gegn sem söngvari um aldamótin- Lék straight eða gay fótboltamann í bíómynd
- Glíman við Parkinson sjúkdóminn- Búinn að skrifa ævisöguna og stefnir á útgáfu

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net