Niðurtalningin - Munu Fylkismenn svara fyrir sig? - a podcast by Fotbolti.net

from 2023-03-28T17:47

:: ::

Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. Fylki er spáð ellefta sæti deildarinnar.

Fylkismenn eru í æfingaferð og því var tekið á það ráð að fá stuðningsmann í sett til þess að ræða um Fylkisliðið. Kristján Gylfi Guðmundsson, yngri flokka þjálfari og stuðningsmaður, mætti á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir málin.Þá var hringt í Ragnar Braga Sveinsson og staðan tekin á liðinu í æfingaferðinni. Óhætt er að segja að fyrirliði þeirra Fylkismanna sé vel stemmdur fyrir tímabilinu.

Fylki er spáð falli og er aðalmarkmiðið hjá liðinu í sumar auðvitað að halda sér uppi; þeir ætla að svara fyrir það hvernig fór síðast þegar liðið var í deild þeirra bestu.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net