Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi - a podcast by Fotbolti.net

from 2022-07-02T14:30

:: ::

Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti.

Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það.Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu.

Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki.Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net