Ungstirnin - Tveir af okkar efnilegustu í hátíðarþætti - a podcast by Fotbolti.net

from 2021-12-22T16:00

:: ::

Ungstirnin eru í hátíðarskapi og fá til sín tvo af efnilegustu leikmönnum Íslands. Gestir þáttarins eru unglingalandsliðsmennirnir Kristian Hlynsson og Orri Steinn Óskarsson sem báðir eru sautján ára, fæddir 2004.Kristan er í herbúðum Ajax og skoraði á dögunum sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins. Orri er hjá FCK í Danmörku þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingaliðið og verið orðaður við stórlið í Evrópu.

Arnar Laufdal Arnarsson heldur um stjórnartaumana í þættinum og gestastjórnandi er Elvar Geir Magnússon. Þeir ræða við þá Kristian og Orra og er víða komið við.Í þættinum er einnig rætt um leikmenn sem voru stjörnur ungir að árum en náðu alls ekki að standa undir væntingum þegar á hólminn er komið og Arnar kynnir þjóðinni fyrir Julian Alvarez sem er orðaður við Manchester United.

Further episodes of Fotbolti.net

Further podcasts by Fotbolti.net

Website of Fotbolti.net