Hanna María og löndin fimm, Sagan um Sunnefu og fréttagetraun - a podcast by RÚV

from 2021-02-06T08:05

:: ::

Fram og til baka 6.febrúar 2021 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - söngvakeppnin frá 2016, Ég sé þig, Hljómsveitin Eva Fimman - Hanna María Karlsdóttir leikkona Fimm lönd sem hún hefur heimsótt eða búið í Bandaríkin Ástralía Dubai Indland Indónesía Viðtal - Árni Friðriksson kennari ME og leikskáld. Höfundur Sunnefu sem verður endurfrumsýnt í Tjarnarbíói í lok febrúar Sunnefa Jónsdóttir er tvívegis dæmd til drekkingar snemma á átjándu öld. Hún var sögð hafa eignast börn með yngri bróður sínum fyrst þegar hún var sextán ára og svo þegar hún var átján. Á Þingvöllum 1743 neitar hún sök og segir að faðir seinna barnsins sé enginn annar en sýslumaðurinn sem dæmdi hana. Hvernig dirfðist fátæk alþýðustúlka að rísa upp gegn yfirvaldinu? Hvað veitti henni slíkan kjark? Leikhópurinn Svipir setur upp kvennatvíleik þar sem leikkonurnar kafa ofan í magnaða sögu Sunnefu. Þær sanka að sér heimildum, rannsaka og reyna að átta sig á hver þessi unga kona var sem lifði svo myrka tíma. Hvert var raunverulegt faðerni barna hennar? Hvað var í húfi þegar hulunni var svipt af sannleikanum? Hverjar voru þessar ?ólánskonur? sem létu lífið í drekkingarhyljum landsins og það oft fyrir litlar sakir? Leikkonurnar raða brotunum saman, kafa dýpra, setja sig í spor Sunnefu og smám saman lifnar saga hennar á sviðinu. Fréttagetraun

Further episodes of Fram og til baka

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV