Friðlandið Heiðmörk fyrir ofan Reykjavík 1/2 - a podcast by RÚV

from 2020-10-02T10:15

:: ::

Aðdragandinn að opnun Heiðmerkur. Þegar Heiðmörk var opnuð árið 1950, varð að veruleika áratuga gamall draumur margra um útivistarsvæði eða „friðland“ í nágrennni Reykjavíkur. Í upphafi tuttugustu aldar voru skógar óðum að hverfa víðast hvar á Íslandi. Tilraunir til að rækta skóg nærri Heiðmörk báru lítinn árangur fyrstu áratugina og sannfærðust margir um að myndarleg tré gætu ekki vaxið á suðvesturhorni landsins. Almennur áhugi fólks, samskot meðal borgarbúa og starf félagasamstaka varð þó loks til þess að Heiðmörk var friðuð og ræktaður þar skógur sá sem þar er í dag. Í þættinum er fjallað um fyrstu tilraunir til að friða og rækta skóg í nágrenni Reykjavíkur, löngun bæjarbúa eftir útivistarsvæði nærri borginni og aðdragandann að opnun Heiðmerkur 1950. Þátturinn er sá fyrri af tveimur um Heiðmörk, í tilefni af 70 ára afmæli útivistarsvæðisins. Umsjón: Kári Gylfason.

Further episodes of Fríhöfnin

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV