Mozart: Misskilinn snillingur 6/10 - a podcast by RÚV

from 2020-03-16T09:10

:: ::

Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesari með Árna Heimi er Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Í sjötta þætti er fjallað um fyrstu ár Mozarts í Vínarborg, tilhugalíf hans og hjónaband með Konstönsu Weber, og tvö stór tónverk sem hann samdi um þetta leyti, messu í c-moll og óperuna Brottnámið úr kvennabúrinu. Einnig er fjallað um áhrif barokktónskálda á tónlist Mozarts, en verk þeirra Bachs og Händels voru í miklum metum hjá Mozart síðasta áratuginn sem hann lifði.

Further episodes of Fríhöfnin

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV