Reykjavíkurnætur: Rúntur tvö 2/3 - a podcast by RÚV

from 2020-03-11T06:43

:: ::

Reykjavíkurnætur er heiti á þremur heimildaþáttum þar sem Sigyn Blöndal kynnir nokkra af nátthröfnum höfuðborgarinnar. Sumir vinna vaktavinnu, aðrir eyða nóttunum í að leita að Pokemon og enn aðrir upplifa rómantískar stundir um borð í hvalveiðibát. Margir halda fast í nóttina, aðrir fagna morgunbirtunni. Nú færist fjör í leikinn þegar við förum rúnt númer 2. Við byrjum á fimmtudagsnóttu og förum í föstudagsfjörið í verslun sem er opin allan sólarhringinn, bönkum upp á í heimahúsi þar sem vaknað er fyrir allar aldir á hverjum einasta morgni og förum í heimsókn á báðamóttökuna í Fossvogi. Viðmælendur: Helgi Bárðarson, Lilja Helgadóttir, Gunnar Pétursson og Hrólfur Smári Pétursson. Umsjón: Sigyn Blöndal.

Further episodes of Fríhöfnin

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV