Elvis - Erna Hrönn - Damon og djammið - a podcast by RÚV

from 2018-03-23T19:23

:: ::

Það verður mikið um dýrðir í Füzz-inu í kvöld! Erna Hrönn Ólafsdóttir mætir með sína uppáhalds rokkplötu og segir okkur aðeins frá henni. Erna er ein vinsælasta söng- og útvarpskona landsins en það eru færri sem vita að hún er mikill rokkari og það verður fróðlegt að kynnast þeirri hlið á þessari gleðisprengju. Plata þáttarins er fyrsta breiðskífa Elvis Presley sem kom út þennan dag árið 1956. Það má með sanni segja að platan, sem kallast einfaldlega Elvis Presley, hafi breytt tónlistarsögunni því þetta var fyrsta rokkplatan til að verma efsta sæti vinsældarlista nokkurstaðar í heiminum og sat hún í heilar tíu vikur á toppi Billboard Top Pop Albums listans. Einnig er þetta fyrsta rokkplatan sem var seld í milljónatali og náði því til eyrna unglinga um allan heim sem sumir áttu eftir að stofna eigin hljómsveitir og breyta tónlistarsögunni líka. A+B í þetta skiptið er með bresku sveitinni Blur enda fagnar forsprakkinn Damon Albarn fimmtugsafmæli sínu í dag. Hann er nú okkur Íslendingum vel kunnur, hefur eytt hér löngum stundum í gegnum tíðina og unnið með íslenskum listamönnum. Það líka sterk Íslands-tenging við sjálfa A-hliðina svo það verður spennandi að heyra þegar smáskífan rúllar í gegn í kvöld. Svo er auðvitað fullt af skemmtilegum rokklögum úr öllum áttum sem eru eins misjöfn og þau eru mörg. En eiga það þó öll sameiginlegt að vera vel til þess fallin að koma fólki til stuðsins á föstudagskvöldi og óskalögin að sjálfsögðu. Umsjónarmaður að þessu sinni er Hlynur Ben- Allir þættirnir sem búið er að útvarpa eru komnir í Hlaðvarp RÚV og í Podcastið á I-tunes þar sem hægt er að gerast áskrifandi að þáttunum. Hér er lagalistinn: Ég heyri raddir - Todmobile God gave me everything - Mick Jagger & Lenny Kravitz I only lie when I love you - Royal Blood Desire - U2 Big in Japan - Guano Apes Blue suade shoes - Elvis Presley (plata þáttarins) His lyrics are disastrous - Jakobínarína Can't deny me - Pearl Jam Bjór - Fræbbblarnir Killing in the name - Rage Against the Machine Í kirkju - Fryðryk -

Further episodes of Füzz

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV