Kalli bæjó - Pavement og Marc Bolan - a podcast by RÚV

from 2019-02-15T19:23

:: ::

Gestur þáttarins að þessu sinni er Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðarbyggðar og söngvari í Saktmóðugi Saktmóðigur er með tónleika á Hard Rock Café í kvöld ásamt Hemúlnum. Plata þáttarins er Crooked rain, Crooked rain með bandarísku hljómsveitinni Pavement sem kom út 14. Febrúar árið 1994, fyrir 25 árum og einum degi. Crooked rain, Crooked rain er önnur plata Pavement sem var stofnuð í Kaliforníu árið 1989 af þeim Stephen Malkmus (söngur og gítar), Scott Kannberg (gítar og söngur), Mark Ibold (basis), Steve West (trommur) og Bob Nastanovich (slagverk og raddir). Eitt laga plötunnar - Cut your hair átti nokkurm vinsældum að fagna og náði inn á topp 20 á bandaríska vinsældalistanum þegar það kom út, en platan Crooked rain, Crooked rain náði ekki inn á topp topp 100 á breiðskífulistanum, fór hæst í 121. sæti. En Crooked rain, Crooked rain er samt mikilvæg plata í rokksögulegu samhengi og ein mikilvægasta plata indie-rokksins. Hún hefur í dag selst í meira en 500.000 eintökum. Crooked rain, Crooked rain er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Lagalistinn: Saktmóðigur - Gleðispillir Pearl Jam - Do the evolution The Who - Magic bus Slade - Move over Hellacopters - Carry me home U2 - Last night on earth MAGNI Á LÍNUNNI - U2 Pavement - Silence kit (plata þáttarins) Beatles - It won´t be long SÍMATÍMI Sex Pistols - Pretty vacant Judas Priest - Electric eye (óskalag) Deep Purple - Smoke on the water (óskalag) A+B Marc Bolan - Get it on (A) Marc Bolan - Debora (B) Jon Spencer Blues Explosion - Bellbottoms Pavement - Range life (plata þáttarins) The Doors - Gloria Rory Gallagher - Shadow play (óskalag) GESTUR FÜZZ - KARL ÓTTAR PÉTURSSON Saktmóðigur - Lífið er lygi KARL ÓTTAR II Flux of Pink indians - Neu smell poem KARL ÓTTAR III Flux of Pink indians - Sick Butchers Edguy - Vain glory opera (óskalag) Led Zeppelin - Kashmir (óskalag) Pavement - Cut your hair (plata þáttarins) Neil Young - Revolution blues (óskalag) Bob Dylan - Like a rolling stone

Further episodes of Füzz

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV