Fastur í úrræðaleysi kerfisins eftir alvarlegan heilaskaða - a podcast by RÚV

from 2018-11-30T16:05

:: ::

Ungur maður féll niður í líkamsrækt og í ljós kom að hann hafði fengið heilablæðingu. Hann var sendur til Svíþjóðar í aðgerð sem fór ekki eins og vonast var til og heili hans varð fyrir miklum súrefnisskorti. Hann hlaut alvarlegan heilaskaða og lífið breyttist, ekki bara hans eigið líf heldur allra aðstandanda hans. Í þættinum í dag heimsækir Viktoría Hermannsdóttir Einar Óla og móður hans, Aðalheiði Bjarnadóttur, á Grensásdeild. Þar hefur hann búið í eitt og hálft ár meðan beðið er eftir að hann komist í annað úrræði, en aðstandendur hans hafa upplifað algjört úrræðaleysi í kerfinu. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Aðalheiður Bjarnadóttir Jóhanna

Further episodes of Málið er

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV