Vissu ekki að hann væri að taka lyf - a podcast by RÚV

from 2018-11-16T16:05

:: ::

Hvernig getur það gerst að átján ára gamall strákur í blóma lífsins deyr úr lyfjaeitrun þegar fjölskylda hans hefur ekki hugmynd um að hann hafi verið í nokkurs konar neyslu? Einar Darri Óskarsson lést þann 25. maí síðastliðinn. Dagana eftir andlátið komst fjölskylda hans að því að hann hafði í skamman tíma áður en hann lést verið að taka lyfseðilsskyld lyf. Fyrir fjölskyldunni opnaðist heimur sem þau vissu ekki að væri til þar sem misnotkun sterkra lyfseðilsskyldra lyfja þykir ekkert tiltökumál. Í þættinum í dag ræðir Viktoría Hermannsdóttir við móður og systur Einars Darra sem óvænt hafa, á sama tíma og þær syrgja hann, leiðst út í baráttu fyrir því að fleiri hljóti ekki sömu örlög og Einar Darri. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Bára Tómasdóttir og Andrea Ýr Arnarsdóttir.

Further episodes of Málið er

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV