15. feb - Útibú, landris, vegir, skæruliðar, blóm og tækni - a podcast by RÚV

from 2022-02-15T06:50

:: ::

Sveitarstjórn Skaftárhrepps gagnrýnir harðlega að Arion banki ætli að loka eina bankaútibúinu á Kirkjubæjarklaustri. Við heyrðum í sveitarstjóranum, Söndru Brá Jóhannsdóttur, um áhrif lokunarinnar á íbúa og atvinnulíf. Land rís enn á Reykjanesskaga og þá virðist ekkert lát vera á landrisi í Öskju og við Grímsvötn. Við heyrðum í Benedikt Gunnari Ófeigssyni, sérfræðingi Veðurstofunnar í jarðskorpuhreyfingum, um skýringar þessa landriss og hvort við megum eiga von á gosi nú á fyrstu mánuðum nýs árs. Morgunblaðið greindi frá því í gær að bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefði sent frá sér áskorun til Vegagerðarinnar á föstudag, í kjölfar þess að vegurinn um Hellisheiði var lokaður í á þriðja sólarhring í síðustu viku. Við ræddum við Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, um þá verkferla sem gilda um þjónustu á vegum og álagið sem fylgir þessari miklu ófærð sem verið hefur á landinu undanfarna daga. Fjórir blaðamenn hafa nú stöðu sakbornings í rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar þeirra sem afhjúpaði störf svokallaðrar skæruliðasveitar Samherja. Þórður Snær Juliusson ritstjóri Kjarnans og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni eru tveir af þeim fjórum blaðamönnum sem boðaðir hafa verið í skýrslutöku vegna málsins en þeir mættu til okkar. Það fengu eflaust mörg falleg blóm frá ástinni sinni í gær og konudagurinn er jafnframt næsta sunnudag svo vertíð blómasala er sannarlega um þessar mundir. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda er jafnan að velta tollamálum fyrir sér og kom til okkar til að ræða tollana á þessum táknrænu gjöfum ástarinnar. Og Guðmundur Jóhannesson, Gummi tækni, var á sínum stað í lok þáttar. Gaman að því. Tónlist: Laufey Lín - Like the Movies Dusty Springfield - Son of a Preacher Man Kacey Musgraves - Justified Alicia Keys - Superwoman Big Thief - No Reason Berndsen og Bubbi - Úlfur Úlfur Árný Margrét - Akureyri Patti Smith - Because the night

Further episodes of Morgunútvarpið

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV