19. júl - Svifstígar, druslugangan, sóttvarnarhús og íþróttir - a podcast by RÚV

from 2021-07-19T06:50

:: ::

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Drífa Viðarsdóttir. Svif­stíg­ar eða svífandi göngustígar, er ekki bara atriði í vísindaskáldskáldsögu eða Sci-fi bíómynd, heldur erum við að tala um nýja lausn fyr­ir viðkvæmt landslag þar sem þörf er á góðu aðgengi. Hönnunin er íslensk, unnin af Alternance - arkitektúr og skipulag, og kallast verkefnið Hovering Trails. Stíg­arn­ir eru komn­ir í notk­un í Hvera­döl­um við Hengil. En er þetta bráðabirgðalausn eða lausn til framtíðar? Við hringdum í Steinunni Baldursdóttur, kynningarfulltrúa Hovering Trails, sem sagði okkur betur frá þessu. Druslugangan verður gengin í tíunda skiptið þann 24. júlí nk. Druslugangan er samstöðuganga með þolendum kynferðisofbeldis og vopn gegn þöggun, skömm og ofbeldi. Við fengum Evu Sigurðardóttur úr skipalagsteyminu til okkar. Sóttvarnarhús eru farin að fyllast á nýjan leik. Bólusett fólk er að smitast, misalvarlega þó því sumir finna ekkert fyrir smitinu. Við fengum til okkar Gylfa Þór Þorsteinsson forstöðumann Sóttvarnarhúsa Rauða krossins til að fara yfir stöðuna þar með okkur. Sérstaklega núna eftir helgina þar sem bara í gær, sunnudag, komu 48 flug til landsins. Og í lok þáttar kom Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og fór yfir íþróttir helgarinnar með okkur. Tónlist: Grafík - Prinsessan Emilíana Torrini - Perlur og svín Á móti Sól - Þetta þokast GDRN - Vorið Lorde - Solar power Kaleo - Hey gringo Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit U2 - I still haven't found what I'm looking for Gabríel, Opee og Unnsteinn Manúel - Sólskin Bjartmar og Bergrisarnir - Á ekki eitt einasta orð Sálin hans Jóns míns - Fyrir utan gluggan þinn

Further episodes of Morgunútvarpið

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV