4. mars - Sirkúslistakona, Magnús Tumi, Sigurður Ingi og fjármál - a podcast by RÚV

from 2021-03-04T06:50

:: ::

Við fórum í heimsókn til Ólafsfjarðar í þættinum. Þar hittum við sirkúslistakonuna Unni Maríu Máney Bergsveinsdóttur, sem einnig er þekkt sem Húlladúllan. Gígja Hólmgeirsdóttir var á ferð á Ólafsfirði á dögunum og skrapp í heimsókn til Unnar Maríu og forvitnaðist störf hennar í sirkúslistinni. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, kom til okkar og fjallaði um jarðsöguna á svæðinu og um yfirvofandi eldgos og jarðskjálfta á Reykjanesskaganum. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, kom til okkar en hann á jafnframt sæti í almannavarna og öryggismálaráði. Við ræðum við hann um samgöngur hér á suðvesturhorni landsins með hliðsjón af þeim jarðhræringum sem núna eru í gangi. og Gunnar Dofri Ólafsson mætti til að ræða fjármál við okkur en hann stýrir hlaðvarpinu Leitin að peningunum sem nýtur vaxandi vinsælda enda má víða sjá að fólk er mun opnara með sín fjármál en áður var. Tónlist: Magni - If I promised you the world Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu Hjálmar - Tjörnin Tal Bachman - She's so high Ásgeir Trausti - Nýfallið regn Sléttuúlfarnir - Akstur á undarlegum vegi Olivia Rodrigo - Drivers licence Oasis - Live forever

Further episodes of Morgunútvarpið

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV