7. sept. - Læsi, ástarsögur, samfélag, vextir og íþróttir - a podcast by RÚV

from 2020-09-07T08:50

:: ::

Á morgun er dagur læsis og þá stendur m.a. til að stofna félag læsisfræðinga. En hvað eru læsisfræðingar og hvað gera þeir? Við fengum til okkar þær Auði Björgvinsdóttur og Katrínu Ósk Þráinsdóttur sem sögðu okkur allt um það. Talandi um læsi - þá skiptir máli að hafa eitthvað spennandi lesefni í boði vilji maður auka lestur. Í síðustu viku kom út bókin Ástarsögur íslenskra karlmanna sem er safn sagna úr veruleikanum sem þau María Lilja Þrastardóttir, Bjarni Þorsteinsson og Rósa Björg Bergþórsdóttir hafa tekið saman. Þau Bjarni og Rósa kíktu til okkar í morgunkaffi og sögðu okkur frá þessari forvitnilegu bók. Reykjanesbær hleypti af stokkunum stóru samfélagsverkefni fyrir nokkrum dögum sem ber heitið Allir með. Skrifað var undir samninga við KVAN og ungmennafélögin Keflavík og UMFN. Sveitarfélagið hefur sett sér það markmið að vera fjölskylduvænn bær og hugar nú sérstaklega að vellíðan barna, jákvæðum samskiptum þeirra og sterkri félagsfærni. Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir verkefnisstjóri fjölmenningarmála í Reykjanesbæ var gestur okkar í dag og fræddi okkur nánar um þetta stóra verkefni. Neytendasamtökin telja skilmála og framkvæmd lána með breytilegum vöxtum ekki standast lög. Samtökin hafa sent stóru bönkunum bréf og krafið þá um að lagfæra skilmála sína og leiðrétta hlut þeirra sem hallað hefur verið á. Bankarnir hafa frest til 24. sept. nk. til að bregðast við. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom til okkar og fór yfir þetta mál. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður fór yfir við helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar og þar bar hæst landsleik Íslands og Englands. Tónlist: Síðan skein sól - Ég stend á skýi. Múgsefjun - Dag eftir dag. Elvis Costello - Everyday I write the book. Miley Cyrus - Midnight sky. Taylor Swift - Cardigan. Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðþögn. Ingó veðurguð - Í kvöld er gigg. Klassart - Gamli grafreiturinn. Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur. Hall and Oates - Say it isnt so. Ariana Grande and Lady Gaga - Rain on me.

Further episodes of Morgunútvarpið

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV