8. júní - Tilnefningar, Ösp Eldjárn, Ljósið, ferðasumarið og tækni - a podcast by RÚV

from 2021-06-08T06:50

:: ::

Reykjavíkurborg óskar nú eftir ábendingum í ellefta sinn um Reykvíking ársins, einhvern sem hefur verið öðrum til fyrirmyndar. Viðkomandi mun t.d. renna fyrstur fyrir laxi í Elliðaánum ásamt borgarstjóra. En hverjir koma nákvæmlega til greina? Við hringjum í Önnu Kristinsdóttur mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar og fengum að vita meira en hún er formaður dómnefndarinnar sem hefur valið úr innsendum tillögum. Í sumar mun alþjóðlega tónlistarsamstarfsverkefnið Global Music Match fara fram í annað sinn, en verkefninu er ætlað að styðja við tónlistarfólk innan þjóðlagatónlistar á tímum heimsfaraldurs. Ísland á sinn fulltrúa í verkefninu, sem í ár er tónlistarkonan Ösp Eldjárn. Hún Ösp kom til okkar og sagði okkur nánar frá þessu verkefni. Það er mikið um að vera hjá Ljósinu , endurhæfinga- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, þessa dagana. Á miðvikudaginn fer t.d fram árleg fjölskylduganga á Esjuna og Ljósavinaherferð fer af stað í vikunni. Við fengum þær Sólveigu Kolbrúnu Pálsdóttur, markaðs og kynningastjóra Ljóssins og Heiða Eiríksdóttur til okkar til að segja okkur meira. Ferðamenn eru farnir að bóka sig hingað til lands nú þegar en gert er ráð fyrir að ferðamannafjöldi aukist jafnt og þétt er líður á sumarið. En hvernig lítur sumarið út í ferðabransanum? Georg Aspelund kom til okkar en hann er eigandi Discover Iceland en fyrirtækið sérhæfir sig í ferðum um landið og hálendið með ferðamenn. Sér hann fram á að það verði talsvert að gera í sumar og að endurreisn ferðabransans sé farin af stað? Pantanirnar eru alla vegana byrjaðar að hrúgast inn. og Guðmundur Jóhannsson kom til okkar í Tæknihornið og sagði frá áhugaverðum nýjungum. Tónlist: Mannakorn - Einhverstaðar einhverntímann aftur Mugison - Kletturinn Hall & Oates - Say it isn't so Ösp Eldjárn - Bakvið fossinn Nýdönsk - Apaspil Taylor Swift - Willow (Elvira remix) Jet black Joe ásamt Sigríði Guðnadóttur - Freedom The Dandy Warhols - Bohemian like you

Further episodes of Morgunútvarpið

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV