Efnahagur og samfélag, Berlínarspjall og Heimsþing kvenleiðtoga - a podcast by RÚV

from 2021-11-09T06:50

:: ::

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir afkomu stærstu tæknifyrirtækja heims í samanburði við önnur fyrirtæki en staða þeirra varð enn betri á tímum heimsfaraldurs. Hann ræddi einnig um úthlutun aflaheimilda í síðustu viku og fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um stöðuna í þýskum stjórnmálum, hvað er að gerast á bak við tjöldin hjá Kristilegum demókrötum eftir slæma útreið í þingkosningunum í haust. Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn var einnig ræddur í Berlínarspjalli sem og endurkoma Thomas Gottschalk í þýskt sjónvarp. Hanna Birna Kristjánsdóttir starfar hjá aðalskrifstofu UN Women í New York. Hún er einnig stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga sem hófst í Hörpu í morgun. Þar munu 600 kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og víðar taka þátt, þar af um 200 í Hörpu og 400 með rafrænum hætti hvaðanæva úr heiminum. Tónlist: Móða og Bekkur með Agnari Má Magnússyni og Lage Lund. Home með Ellen Kristjánsdóttir og Have you ever seen the rain með Creedence Clearwater Revival. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Further episodes of Morgunvaktin

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV