Matarsóun, flugfargjöld og pólitíkin í dag - a podcast by RÚV

from 2021-11-12T06:50

:: ::

Þorsteinn Ingi Víglundsson, forstjóri ThorIce, ræddi matarsóun og umhverfismál en fyrirtæki hans, ThorIce, var tilnefnt til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Lausnir fyrirtækisins miða að kæla hraðar og spara orku og um leið bæta gæði hráefnisins, svo sem sjávarfangs og kjúklings og draga þar með úr matarsóun. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði í ferðaspjalli um aukagjöld sem fylgja flugfargjöldum, svo sem töskugjöld og sætisgjöld. Eins um aukið flugframboð Ryanair og ásókn í ferðalög til Bandaríkjanna. Willum Þór Þórsson, starfsforseti Alþingis, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, fóru yfir pólitíkina, ríkisstjórnarmyndun og hvenær þing komi saman en 48 dagar eru liðnir frá kjördegi. Það þarf að gerast í síðasta lagi 4. desember og á Willum von á að það gerist fljótlega. Þorbjörg telur að þetta hafi tafist allt of lengi að mynda ríkisstjórn. Heilbrigðismálin og Covid voru einnig rædd sem og staðan í Norðvestur-kjördæmi og störf undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa. Tónlist: Waves með Mezzoforte og Coles Corner með Richard Hawley. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Further episodes of Morgunvaktin

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV