Húsfyllir á hverju sunnudagskveldi - a podcast by RÚV

from 2018-04-02T12:03

:: ::

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sigrún Tinna Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur og fræðslustjóri AFS á Íslandi, úr bréfi Jóninnu Pétursdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Jóninna starfaði við ráðsmennsku, matreiðslu og saumaskap en hún vann á saumaverkstæði Steinunnar Briem í Reykjavík árið 1918. Hún útskrifaðist úr Kvennaskólanum á Blönduósi árið 1921 og kenndi síðar við skólann. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Further episodes of R1918

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV