Í fylgd með fullorðnum í 30 ár - a podcast by RÚV

from 2017-10-01T16:05

:: ::

Platan í fylgd með fullorðnum er þriðja breiðskífa Bjartmars Guðlaugssonar. Hún var í öðru sæti yfir mest seldu plötur ársins 1987 og lög af henni eins og Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki og Járnkallinn hljómuðu í útvarpinu næstum stanslaust. Síðan eru liðin 30 ár og Bjartmar kom í Rokkland á sunnudgainn til að segja frá plötunni og lögunum sem hana prýða. Í upphafi þáttar er líka skautað yfir líf Bjartmars og tónlistarferil til ársins 1987 þegar hann gerði þessa plötu. Hann segir frá uppvextinum á Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum og ræðir um músíkina, trommarann Bjartmar og svo framvegis. Titillag plötunnar; Í fylgd með fullorðnum, fjallar um unga drenginn Bjartmar sem hlustaði á útvarpið í eldhúsinu heima hjá sér fullur skelfingar og átti allt eins von á að dagar sínir og allra annara væru brátt taldir. Bjartmar segir m.a. í þættinum: “þegar ég var drengur var ég alveg óskaplega hræddur við stríð. Ég var hræddur við Kóreustríðið en sérstaklega var ég hræddur við Kúbudeiluna þegar ég var 11 ára. Og ég var svo skelfingu lostinn þegar ég var 11 ára gamalt barn að ég vildi frekar þola ávítur fyrir það að koma ekki heim í hádegismat eða kvöldmat, og vera heldur niðri á bryggju, en þurfa að hlusta á raddir Ríkisútvarpsins skýra frá þessari deilu. Ég var orðinn ótrúlega hræddur við röddina í útvarpinu sem var að segja mér að kannski yrði engin veröld til á morgun. Ég tók inná mig ýmsar fréttir og ótti minn við stríð hefur alla stríð verið og er enn mjög mikill. Og ég fór að hugsa þarna þegar ég gerði þessa plötu; aumingja börnin í dag sem þurfa að hlusta á allar þessar fréttir í stereo, og eru þau ekki jafn hrædd við þetta og ég var“.

Further episodes of Rokkland

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV