My Head Is An Animal 10 ára - a podcast by RÚV

from 2021-11-07T16:05

:: ::

Um þessar mundir eru tíu ár frá því að fyrsta plata Of Monsters and Men kom út. Af því tilefni er komin út afmælisútgáfa af plötunni með tveimur áður óútgefnum lögum ? og ekki bara einhverjum lögum heldur eru þetta 2 af þeim þremur lögum sem hljómsveitin flutti í M?usíktilraunum árið 2010 þegar þau sigruðu einmitt í þeirri merkilegu og lífseigu keppni. Hljómsveitin fagnar líka afmælinu með fernum tónleikum á Gamla Bíó núna á næstu dögum, en þar hélt sveitin einmitt sína fyrstu alvöru tónleika fyrir áratug. Og í tilefni af afmælinu ætlum við að hlusta á alla plötuna með þeim Ragga og Nönnu liðsmönnum OMAM. OMAM er ein allra vinsælasta og þekktasat hlómsveit íslenskrar tónlistarsögu og OMAM er eina íslenska hljómsveitin/listamaðurinn sem hefur komið þremur plötum á topp 10 á vinsældalistanum í Bandaríkjunum. Allar þrjár plötur sveitarinnar hana náð inn á topp 10 þar. Þetta er hæfilikaríkt, duglegt og gott fólk sem við getum verið stolt af.

Further episodes of Rokkland

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV