Sérfræðingurinn Sóley Tómasdóttir - þolendur og gerendur - a podcast by RÚV

from 2021-11-25T11:00

:: ::

Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikasérfræðingur. Umræðan undanfarið ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum, til dæmis í kjölfar síðustu tveggja þátta Kveiks á RÚV. Við, samfélagið, erum að feta okkur áfram í umræðu og samtali um kynferðislegt ofbeldi, ábyrgð, afleiðingar og úrlausnir. Þetta er flókin og erfið umræða sem margir hræðast, kannski af því að í gegnum árin hafa þessi mál ekki verið rædd. Þegar #metoo-hreyfingin fór af stað var þögnin rofin. Allir virðast kannast við kynferðislegt ofbeldi, annað hvort á eigin skinni eða í gegnum einhvern nálægt sér. En þrátt fyrir að þögnin hafi verið rofin er ljóst að við kunnum ekki sérstaklega vel að takast á við vandann. Við kunnum að reiðast, að sjokkerast, að vera nóg boðið, en hvað svo? Fjölmargar spurningar vakna, en svörin liggja ekki ljóst fyrir. Hvernig tökum við næstu skref í þessum málum? Í fyrri hluta þáttarins fórum aðeins yfir stöðuna með Sóley og fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum. Hún hefur verið með fræðslu á vinnustöðum og stofnunum um ómeðvitaða hlutdrægni og hvernig er hægt að sporna við henni. Í seinni hlutanum svaraði Sóley svo spurningum sem hlustendur hafa sent inn í pósthólf þáttarins mannlegi@ruv.is.

Further episodes of Sérfræðingurinn

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV