Podcasts by Smá pláss

Smá pláss

Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll streyminu klukkan 21 og stýrist af Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Sunnu Axels.

Further podcasts by RÚV

Podcast on the topic Gesellschaft und Kultur

All episodes

Smá pláss
Smá jól from 2018-12-26T21:00

Sunna og Elín elska jólin en hafa of oft orðið jólastressinu að bráð. Þær ræða um samviskubit, veganjól og pressuna sem fylgir oft jólunum um að allt þurfi að vera baðað fullkomnun og hamingju. Þet...

Listen
Smá pláss
Klausturmálið from 2018-12-19T21:00

Sunna og Elín hafa setið tímunum saman á bar en hafa þrátt fyrir það aldrei gerst sekar um hatursorðræðu gagnvart samstarfsfólki sínu og minnihlutahópum. Sunna og Elín ræða um #klausturgate og viðb...

Listen
Smá pláss
Polish Women in Iceland, with Anna Marjankowska from 2018-12-12T21:00

Sunna and Elín live in Iceland, which is also home to just over 17,000 Polish immigrants. Anna Marjankowska, board member of the Efling trade union, joins Smá Pláss this week to talk about Polish w...

Listen
Smá pláss
Konur af erlendum uppruna með Claudie Wilson from 2018-12-05T21:00

Sunna og Elín eru Íslendingar, en u.þ.b. 12% Íslendinga eru innflytjendur. Konur af erlendum uppruna eru oft í viðkvæmri stöðu, eins og sást á sögum þeirra í #metoo-byltingunni. Þessar konur hafa o...

Listen
Smá pláss
Kynsegin með Vallý from 2018-11-28T21:00

Sunna og Elín eru sískonur. Fólk sem er ekki sís býr margt hvert við fordóma og áreiti, og ekki síst misskilning. En samhliða því að sumstaðar sé mikið bakslag í réttindum hinsegin fólks er algenga...

Listen
Smá pláss
Klám from 2018-11-21T21:00

Sunna og Elín hafa séð klám, enda er það svo aðgengilegt í dag að það er varla hægt að komast hjá því. Klám er farið að hafa stórtæk áhrif á ungt fólk, og þá sérstaklega stráka, sem alast upp með i...

Listen
Smá pláss
Fávitar from 2018-11-14T21:00

Sunna og Elín lenda stundum í fávitum. Fávitar eiga það til að senda fólki óumbeðnar typpamyndir, hótanir og svívirðingar á netinu. Kynferðisleg áreitni grasserar á samfélagsmiðlum og lítið virðist...

Listen
Smá pláss
Þungunarrof from 2018-11-07T21:00

Sunna og Elín vilja eiga sjálfsákvörðunarrétt yfir sínum eigin líkama undantekningalaust. Það inniheldur réttinn til að taka ákvörðunina um að rjúfa þungun, sama hvað ástæður liggja þar að baki. Su...

Listen
Smá pláss
Móðurhlutverkið from 2018-10-31T21:00

Sunna og Elín eiga engin börn. Þær hafa hins vegar heyrt alls konar hluti um hvernig það er að eiga börn og finnst móðurhlutverkið oft vera baðað óraunhæfum ljóma. Gert er ráð fyrir því að allar ko...

Listen
Smá pláss
Sjálfsfróun og fullnægingar from 2018-10-24T21:00

Sunna og Elín fá stundum fullnægingar - stundum í einrúmi og stundum með öðrum. Sjálfsfróun er tabú, ekki síst fyrir konur, enda hefur kynhegðun kvenna löngum verið sett í skammarlegt samhengi. Sun...

Listen
Smá pláss
Líkamsvirðing from 2018-10-17T21:00

Sunna og Elín eru með líkama og hafa frá byrjun fengið mjög skýr skilaboð frá samfélaginu um hvernig þeir eigi að líta út. Líkamar sem uppfylla ekki þessi skilyrði verða enn fyrir aðkasti og lýsing...

Listen
Smá pláss
Nauðgunarmenning from 2018-10-10T21:00

Sunna og Elín verða varar við nauðgunarmenningu daglega. Hún er stórt vandamál á Íslandi sem og annarsstaðar. Nauðgunarmenning kristallast í því þegar konum er ekki trúað þegar þær segja frá, þegar...

Listen
Smá pláss
Fötlun og femínismi from 2018-10-03T21:00

Sunna og Elín njóta ýmissa forréttinda. Þeirra femínismi á ekki við alla, t.d. eru fatlaðar konur með önnur forgangsatriði og sjónarhorn í sinni baráttu. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er gestur...

Listen
Smá pláss
Tvískinnungar from 2018-09-26T21:00

Sunna og Elín fá allt önnur viðbrögð frá samfélaginu en karlar fyrir sömu hegðun. Tvískinnungar (e. double standards) leynast víða. Karlar mega eldast, konur eiga að halda sér í formi tvítugrar kon...

Listen
Smá pláss
Femínismi í framhaldsskólum from 2018-09-19T21:00

Sunna og Elín byrjuðu í menntaskóla fyrir 10 árum. Á þeim tíma var drusluskömmun daglegt brauð og að skilgreina sig sem femínista var félagslegt sjálfsmorð. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjá...

Listen
Smá pláss
Kynlíf from 2018-09-12T21:00

Sunna og Elín hafa virkilega gaman af kynlífi eins og svo margir aðrir. Þær hafa lært margt á upp á eigin spýtur enda var kynfræðslan sem þær fengu á uppvaxtarárunum ekki upp á marga fiska. Aukin f...

Listen
Smá pláss
Gerendur from 2018-09-05T21:00

Sunna og Elín eru hluti hins fjölmenna hóps kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi af hálfu karla. Gerendur kynbundins ofbeldis eru ýmist fordæmdir eða fyrirgefið gjörsamlega af samfélaginu og eru j...

Listen
Smá pláss
Átröskun og samfélagið from 2018-08-29T21:00

Sunna og Elín búa í samfélagi sem verðlaunar átraskanir. Í þætti vikunnar ræða þær við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, sviðshöfund og listakonu, sem opnaði sig nýlega um baráttu sína við átröskun. Þær spja...

Listen
Smá pláss
Konur á skjánum from 2018-08-22T21:00

Sunna og Elín horfa stundum á bíómyndir og þætti. Þeim finnst samt alltaf eins og söguþræðirnir séu einsleitir og kvenpersónurnar ófrumlegar og einfaldaðar. Hvað ef fleiri konur gerðu bíómyndir? E...

Listen
Smá pláss
Skaði from 2018-08-15T21:00

Sunna og Elín eru gagnkynhneigðar sískonur og njóta forréttinda sem slíkar. Þær hefur lengi langað að stækka sjónarhorn þáttarins og gestur þeirra að þessu sinni er Skaði Þórðardóttir. Þær ræða sam...

Listen
Smá pláss
Femínismi 101 from 2018-08-08T21:00

Sunna og Elín eru ennþá að berjast fyrir réttindum kvenna - en af hverju? Er nokkuð eitthvað misrétti á Íslandi? Er jafnrétti ekki bara náð? Sunna og Elín taka fyrir grundvallaratriði femínisma í e...

Listen
Smá pláss
Túr from 2018-08-01T21:00

Sunna og Elín fara á túr einu sinni í mánuði og finnst það frekar glatað. Margar konur burðast með skömm hvað varðar blæðingar og hafa notað öll trixin í bókinni til að fela þær fyrir fólkinu í kri...

Listen
Smá pláss
Auglýsingar from 2018-07-25T21:00

Sunna og Elín eru ekki nógu góðar EN hér er vara sem þær geta keypt til að verða betri, grennri og með lengri augnhár! Þáttur vikunnar er um auglýsingar og hvernig enginn getur staðist skilaboðin s...

Listen
Smá pláss
Stefnumótamenning from 2018-07-18T21:00

Sunna og Elín ákveða að taka léttara umræðuefni í kjölfar síðustu þátta sem fjölluðu um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Þær ákveða að ræða um skemmtilega hluti eins og hækkaða standarda, ástríðuf...

Listen
Smá pláss
Stafrænt kynferðisofbeldi from 2018-07-11T21:00

Sunna og Elín fá til sín Huldu Hólmkelsdóttur sem leitaðist við að skilgreina stafrænt kynferðisofbeldi í BA-ritgerðinni sinni “Syndir holdsins“ árið 2016. Sunna, Elín og Hulda ræða um stafrænt kyn...

Listen
Smá pláss
Kynferðisleg áreitni from 2018-07-04T21:00

Sunna og Elín hafa eins og svo margar aðrar konur verið áreittar kynferðislega ótal sinnum. Þrátt fyrir alla umræðuna sem hefur vaknað upp á síðkastið eru margir sem gera lítið úr slíkri áreitni, n...

Listen
Smá pláss
Svikaraheilkennið from 2018-06-27T21:00

Sunna og Elín upplifa sig stundum sem svikara. Loddaralíðanin á það til að laumast upp að þeim eins og gremlins og telja þeim trú um að þær hafi komist áfram í lífinu óvart eða með svikum, en ekki ...

Listen
Smá pláss
Taka pláss from 2018-06-20T21:00

Sunna og Elín mega taka smá pláss! Konum er frá unga aldri kennt að vera hljóðlátar, hlýðnar og til friðs og að gera helst aldrei mistök. Á meðan fá strákar að hafa hátt og taka áhættur. Það er ekk...

Listen
Smá pláss
Karlmennskan from 2018-06-13T21:00

Sunna og Elín spjalla við Þorstein V Einarsson, upphafsmann #karlmennskan-byltingarinnar, um skaðlega karlmennsku, samkennd, naglalakk og meint hlutverk kynjanna. Þorsteinn segir frá hvernig karlme...

Listen
Smá pláss
Trúverðugleiki kvenna from 2018-06-06T21:00

Sunnu og Elínu finnst eins og stundum sé ekki tekið mark á því sem þær segja. Hversu oft hafa þær lent í aðstæðum þar sem frásögn þeirra er dregin í efa? Hversu oft hafa þær komið með hugmynd upp á...

Listen
Smá pláss
Samviskubit from 2018-05-30T21:00

Sunna Axels og Elín Elísabet eru með samviskubit. Samviskubitið er daglegt brauð, sama hvort það er yfir því að fara of seint að sofa, hafa of litla kynhvöt eða of mikla, vera með vesen, hafna fólk...

Listen