Peningar - a podcast by RÚV

from 2021-12-05T08:05

:: ::

Hvað er það sem getur valdið áhyggjum, gleði og andvaka nóttum? Jafnvel þó við eigum nóg, þá væri fínt að eiga aaaaðeins meira? Það er oft talað um hversu erfitt það sé að mæla hamingju, og útaf þeirri ástæðu hefur oft verið reynt að tengja það við viðfangsefni okkar í þetta skipti. Peninga. Sum okkar virðast fæðast með peningavit, önnur okkar eiga aðeins erfiðara með þá að fara, ég viðurkennifúslega að ég hef oftar en ekki tilheyrt seinni hópnum. Mér hefur oft fundist furðulega, svona þegar ég hugsa til baka, hvernig ég gat farið í gegnum 14 ár af skóla án þess að fara neitt sérstaklega mikið út í peninga. Hvernig þeir virka, hvaða þeir koma og hvernig í ósköpunum eigi að fara með þá? Ég útskrifaðist úr MH með 30 einingar í ensku, en hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að gera skattaskýrslu. Sem er auðvitað merkilegt því hana þarf ég að gera á hverju einasta ári, en ég lendi mjög sjaldan í þeim aðstæðum að þurfa að útskýra fyrir einhverjum af hverju Monty Python sé svona merkilegt sjónvarpsefni. En það er aldrei of seint í rassinn gripið og þessvegna fékk ég til mín Björn Berg, sem er orðinn góðvinur þáttarins enda viskubrunnur þegar kemur að alls kyns málefnum, til að fara yfir peninga.

Further episodes of Þú veist betur

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV